SAMNINGUR VIÐ FLUGVÉLAG ÍSLANDS

25. júlí 2008

Sælir félagar.

Eins og margir vita þá verður aðalgeymslustaður fyrir Pál Sveinsson á flugsafninu á Akureyri, allavega á veturna. Gerður hefur verið samningur við Flugfélag Íslands vegna farmiða fyrir áhafnir Páls þegar verið er ferja vélina til og frá Akureyri. Flugfélagið hefur hingað til flutt áhafnir endurgjaldslaust en eins og áður er sagt er búið að gera formlegan samning þar um. Eins hefur Flugfélag Íslands aðstoðað á margan hátt við viðhald og skoðanir og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir.

Páll Sveinsson er nú á Reykjavíkurflugvelli og næsta flug verður um verslunarmannahelgina en þá verður vélinni flogið austur í Múlakot þar sem hún verður þá helgi.

Félagskveðja, Karl Hjartarson

dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.

Nýjustu fréttirnar

Saga Gunnarsholts

Sveinn Runólfsson, fyrverandi Landgræðslustjóri og varaformaður Þristavinafélagsins, hefur skrifað bók um sögu Gunnarsholts....

Lesa frétt

SKRÁ MIG Á PÓSTLISTA ÞRISTAVINA

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.