10.02.2006
Stjórn Þristavinafélagsins verður með opið hús í aðstöðu félagsins að Ólafsvöllum í Elliðarárdal , (gamla toppstöð Rafmagnsveitu Reykjavíkur), laugardaginn 11. febrúar n.k. frá kl. 13:00 til 15:30. Félagar eru hvattir til að kíkja í kaffisopa og spjall. Formaður félagsins og fleiri stjórnarmenn verða á staðnum og við hvetjum ykkur til að koma og ræða málefni félagsins. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Hvernig keyrir maður þangað?
Keyrið áleiðis uppí Árbæ, takið hægri beygju útaf Ártúnsbrekku, þetta er löng u-beygja, þarnæst beygjið til vinstri upp Elliðaárdalinn. Húsið er mosgrænt á litinn með gulum hurðum, ætti ekki að fara framhjá neinum.